Lífið

Eiginkonan hágrét þegar hann reyndi hættulegasta atriði í sögu þáttanna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rosalegt að sjá.
Rosalegt að sjá.
Demian Aditya mætti í America´s Got Talent á dögunum og sýndi hann mjög svo hættulegt atriði sem gekk út á það að að koma sér út úr mjög hættulegri aðstöðu.

Aditya fékk hugmyndina af atriðinu þegar hann sá annan mann deyja við það eitt að reyna.

Á dögunum mætti kappinn í þáttinn og kom sér út úr kistu á skömmum tíma. Í þessu atriði þurftu dómararnir að fara út úr húsi til að fylgjast með.

Aditya var hlekkjaður fastur með keðjum og það ofan í jörðinni með mörg hundruð kíló af sandi ofan á sér. Eiginkona hans hágrét þegar kappinn reyndi að standast þessa áskorun og er líklega um að ræða hættulegasta atriðið í sögu þáttanna. Hann hafði aðeins níutíu sekúndur til að losna.

Hér að neðan má sjá hvernig til tókst.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×