Erlent

Kushner sver af sér samráð við Rússa

Kjartan Kjartansson skrifar
Jared Kushner hefur verið gagnrýndur fyrir að greina ekki hreint frá samskiptum við rússneska embættis- og athafnamenn.
Jared Kushner hefur verið gagnrýndur fyrir að greina ekki hreint frá samskiptum við rússneska embættis- og athafnamenn. Vísir/AFP
Tengdasonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta neitar því að hafa átt samráð við rússnesk stjórnvöld um forsetakosningarnar í fyrra. Þetta kemur fram í skriflegum framburði sem Jared Kushner hefur sent þingnefndinni sem hann kemur fyrir í dag.

Kushner kemur fyrir leyniþjónustunefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings í dag og hliðstæðu hennar í fulltrúadeildinni á morgun. Yfirheyrslurnar fara fram fyrir luktum dyrum og talið er að framburður Kushner verði ekki eiðsvarinn.

Washington Post segir að í skriflegri yfirlýsingu Kushner til beggja nefnda greini hann frá fjórum fundum með rússneskum embættismönnum á meðan á kosningabaráttunni stóð og frá tímabilinu frá því að Trump var kjörinn og þangað til hann tók við embætti.

Þar á meðal er fundurinn með rússneskum lögfræðingi sem lofaði skaðlegum upplýsingum um Hillary Clinton sem sagt hefur verið frá undanfarið. Donald Trump yngri, sonur forsetans og mágur Kushner, kom þeim fundi á koppinn.

Engin óviðeigandi samskipti

Kushner ver samskipti sín við Sergei Kislyak, sendiherra Rússa, og fleiri embættismenn og segir þá dæmigerða fyrir samskipti sem tengiliðir forsetaframboðs eins og hann var hafa við erlendar ríkisstjórnir.

Hafnar hann því að hafa gert nokkuð saknæmt og staðhæfir að samskipti hans við Rússa hafi verið takmörkuð. Þau hafi ekki verið óviðeigandi. Þá segir hann að viðskiptaveldi sitt hafi ekki reitt sig á fjármögnun frá Rússlandi.

„Ég átti ekki í samráði og ég veit ekki um neinn annan í framboðinu sem átti samráð við nein erlend stjórnvöld,“ segir Kushner í yfirlýsingu sinni.

Nefndir Bandaríkjaþings vilja einnig að Paul Manafort, fv. kosningastjóri Trump, beri vitni um samskipti við Rússa.Vísir/AFP
Vildi afsökun til að komast af fundinum margumrædda

Um fund þeirra Donald Trump yngri og Paul Manafort, þáverandi kosningastjóra Trump, með rússneska lögfræðingum í fyrra segist Kushner hafa mætt seint. Hann hafi fljótt gert sér grein fyrir að fátt markvert kæmi fram á honum og að „tímanum væri illa varið“.

Hann hafi jafnvel sent aðstoðarmanni skilaboð á meðan hann var á fundinum og beðið hann um að hringja í sig til þess að hann hefði afsökun til að láta sig hverfa af honum, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

Kushner er 36 ára gamall. Auk þess að vera eiginmaður Ivönku, dóttur Bandaríkjaforseta, hefur Kushner verið einn helsti trúnaðarmaður Trump. Hefur forsetinn falið honum fjölda verkefna, þar á meðal að koma á friði í Miðausturlöndum og að binda enda á ópíumfaraldur í Bandaríkjunum.

Sendi óvart drög að yfirlýsingu um samskipti við erlenda aðila

Þingnefndir í bæði öldunga- og fulltrúadeild Bandaríkjaþings rannsaka nú meint samráð framboðs Trump við Rússa auk þess sem dómsmálaráðuneytið skipaði Robert Mueller sem sérstakan rannsakanda í málinu.

Bandarískar leyniþjónustustofnanir hafa komist að þeirri niðurstöðu að rússnesk stjórnvöld hafi staðið fyrir víðtækum tilraunum til þess að hafa áhrif á forsetakosningarnar vestanhafs í fyrra með það að markmiði að tryggja Trump sigur.

Formenn leyniþjónustunefndar öldungadeildarinnar, Mark Warner (3.f.v.) og Richard Burr (2.f.h.) hafa kallað Kushner á sinn fund í dag.Vísir/EPA
Bent hefur verið á að Kushner hafi ekki látið samskipta sinna við Rússa getið þegar hann skilaði yfirlýsingu sem er krafist þegar embættismenn fá öryggisheimild og aðgang að leynilegum upplýsingum.

Kushner segir að fyrir mistök hafi ófullkomin yfirlýsing verið send yfirvöldum. Þær upplýsingar hafi verið uppfærðar yfir hálfs árs tímabil síðan.


Tengdar fréttir

Trump yngri kallaður fyrir þingnefnd

Formaður nefndarinnar, Chuck Grassley, sagði blaðamönnum í dag að Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóri Trump eldri, yrði einnig kallaður fyrir nefndina.

Enn hrellir Rússagrýlan Donald Trump

Donald Trump yngri sótti fund þar sem honum var lofað upplýsingum um Hillary Clinton. Trump yngri var upplýstur um að upplýsingarnar væru hluti af stuðningi yfirvalda í Rússlandi við framboðið.

Tengdasonur Trump kemur fyrir þingnefnd

Búist er við að spurningar um samskipti við rússneska embætismenn og athafnamenn verði efst á baugi þegar Jared Kushner, tengdasonur og helsti ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, kemur fyrir þingnefnd í dag. Yfirheyrslurnar fara fram fyrir lokuðum dyrum og verður framburður Kushner ekki eiðsvarinn.

Trump reiður dómsmálaráðherra sínum

Segist sjá eftir því að hafa skipað Jeff Sessions í embætti eftir að hann sagði sig frá rannsókn á afskiptum Rússa af forsetakosningunum.

Rússneski sendiherrann yfirgefur Washington

Sergei Kislyak hefur mikið verið í umræðunni á árinu vegna tengsla ráðgjafa Donald Trump Bandaríkjaforseta og fulltrúa rússneskra stjórnvalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×