Fótbolti

Viðarsdætur gera armbeygjur á morgnana og styðja stelpurnar á kvöldin

Tómas Þór Þórðarson í Ermelo skrifar
Systurnar Margrét og Elísa Viðarsdætur gátu ekki tekið þátt á EM vegna meiðsla. Þær eru samt sem áður í Hollandi að styðja stelpurnar okkar.

Eyjastelpurnar slitu báðar krossband skömmu fyrir Evrópumótið. Svekkelsið vitaskuld ævintýralegt hjá þeim og Margrét viðurkennir að það er erfitt að horfa á þetta úr fjarska; jafnt leikina og alla umfjöllunina.

„Já, mjög. Það er nánast verið að strá salti í sárin alla daga. Við erum bara ótrúlega einbeittar á það sem við erum að gera. Við erum að æfa á fullu hérna úti og vorum að gera það úti líka. Við erum að gera allt sem við getum gert til að ná bata. Við erum líka að styðja stelpurnar en óneitanlega er þetta gríðarlega svekkjandi og mjög erfitt,“ segir Margrét.

Margrét og Elísa eru ekki bara að sóla sig og njóta lífsins í Hollandi heldur gera þær æfingar á hverjum degi úti í garði.

„Við erum í svona hálfgerðri æfingaferð eða meðferðar-ferð. Það kostar mikla vinnu ef maður ætlar að koma almennilega til baka. Við ætlum að reyna að gera það eins vel og við getum og svo vonandi, ef við erum nægilega samviskusamar, verður þetta góð endurkoma,“ segir Elísa.

Báðar ætla sér endurkomu í landsliðið og láta sig dreyma um að spila saman á HM 2019. „Það væri bara draumi líkast að ganga þar saman inn á völlinn, systurnar. Það er stefnan að ná því með landsliðinu en maður hefur ekki fullkomlega stjórn á þessu,“ segir Margrét.

Þrátt fyrir að þessar tvær Eyjakonur eru úr leik er önnur Eyjamær búin að byrja báða leiki liðsins á mótinu. Það er grjótharði miðjunaglinn Sigríður Lára Garðarsdóttir sem þær eru báðar mjög stoltar af.

„Það vill enginn lenda í Sísí. Það er gaman að fylgjast með henni og framtíðin er algjörlega hennar,“ segir Margrét og Elísa tekur undir orð systur sinnar.

„Sísi eru tveir persónuleikar. Það er einn innan vallar og einn utan vallar. Hún myndi ekki gera flugu mein utan vallar því hún er frábær og yndisleg stelpa en það er gott að geta skipt um gír inn á vellinum því þar kannski þarftu stundum að gera meira en flugu mein,“ segir Elísa Viðarsdóttir.

Allt innslagið úr kvöldfréttum Stöðvar 2 má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Enn þá skrefi á eftir þeim bestu

Stelpurnar okkar eru úr leik á EM. Skelfilegur laugardagur sá um það þar sem Ísland tapaði fyrir Sviss og fékk svo engan greiða frá Frakklandi. Litlu hlutirnir féllu ekki með Íslandi sem tapaði fyrir betri liðum.

Endurfundir í Hollandi

"Hann er stuðningsmaður Íslands,“ segir Brynjar Svansson, faðir Dagnýjar Brynjarsdóttur, sem er duglegur að klæða Hollendinga í bláar landsliðstreyjur.

EM í dag: Typpalingarnir hennar Eddu Garðars

Ætli einhver leikmaður íslenska landsliðsins sé með umboðsmann? Af hverju er Fanndís Friðriksdóttir ekki hjá toppliði í Svíþjóð? Innhólfið hjá Frey er stútfullt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×