Martraðarbyrjun og vítaklúður | María og norsku stelpurnar á heimleið af EM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
María Þórisdóttir vinnur boltann í leiknum í kvöld.
María Þórisdóttir vinnur boltann í leiknum í kvöld. Vísir/Getty
Í fyrsta sinn í tuttugu ár kemst norska kvennalandsliðið í fótbolta ekki upp úr sínum riðli á EM kvenna í fótbolta.

Noregur tapaði í kvöld 1-0 á móti Danmörku en norsku stelpurnar þurftu bæði að treysta á þriggja marka sigur sem og hagstæð úrslit úr hinum leik riðilsins.

Noregur er búið að vera í undanúrslitum á síðustu fjórum Evrópumótum þar af spila tvisvar til úrslita um titilinn á þessum tuttugu árum. Nú fara þær hinsvegar bæði stigalausar og markalausar heim til Noregs.

Dönsku stelpurnar tryggðu sér sæti í átta liða úrslitunum með þessum sigri en sigurmarkið kom strax á sjöundu mínútu leiksins.

Norsku stelpurnar máttu alls ekki við því að fá á sig mark í upphafi leiks hvað þá að klikka á vítaspyrnu rétt fyrir hálfleik.

Hin íslensk ættaða María Þórisdóttir lék með norska liðinu í kvöld en hún missti af tapleiknum á móti Belgíu vegna meiðsla.

Markvörður norska liðsins meiddist og það var mikil töf á leiknum. Uppbótartíminn varð því alls tíu mínútur en það nýttist þó ekki norska liðinu til að skora sitt fyrsta mark á Evrópumótinu.

Katrine Veje kom danska liðinu í 1-0 á 7. mínútu með laglegri afgreiðslu og norsku stelpurnar þurftu því að skora fjögur mörk.

Fyrsta skrefið af því hefði verið að nýta víti á 44. mínútu en Stina Lykke Petersen varði þá frá Caroline Hansen.

Norsku stelpur héldu áfram að reyna en þær fengu fleiri færi og skutu meðal annars í slá.  Þá var einnig mark dæmt af þeim vegna rangstöðu.

Þetta féll ekki með norsku stelpunum á þessum Evrópumóti og þær eru því á leiðinni heim eins og íslensku stelpurnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira