Innlent

Fáliðuð Persónuvernd með þrefalt fleiri mál

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Tækniframfarir síðustu ára hafa gjörbylt allri vinnslu og meðferð persónuupplýsinga. Umhverfið er að gjörbreytast.
Tækniframfarir síðustu ára hafa gjörbylt allri vinnslu og meðferð persónuupplýsinga. Umhverfið er að gjörbreytast. VÍSIR/VILHELM
Fjöldi þeirra mála sem kemur á borð Persónuverndar hefur meira en þrefaldast frá því að stofnuninni var komið á fót fyrir sautján árum. Engu að síður eru starfsmenn Persónuverndar jafn margir nú og þá, sjö talsins. Forstjóri stofnunarinnar segir brýna þörf á meiri mannafla til að tryggja að hér sé tryggður stjórnarskrárvarinn réttur manna til friðhelgi einkalífs og persónuverndar.

Fram kemur í nýbirtri ársskýrslu Persónuverndar að stofnuninni hafi borist 1.865 mál í fyrra. Er það um 6,5 prósenta aukning á milli ára. Málafjöldinn hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum.

Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir að umhverfi persónuverndar sé að gjörbreytast. Bæði hafi umbylting orðið í því hvernig hægt er að nálgast og safna persónuupplýsingum og gera þær upplýsingar að verðmætri söluvöru og þá komi til framkvæmda á næsta ári ný evrópsk persónuverndarlöggjöf sem feli í sér mestu breytingar sem gerðar hafa verið á regluverkinu í yfir tuttugu ár.

Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar.vísir/ernir
„Þessar miklu breytingar kalla óumflýjanlega á meiri aðkomu persónuverndarstofnana að mörgum málum. Við þurfum jafnframt að leggja aukna áherslu á leiðbeinandi hlutverk stofnunarinnar. Við höfum ekki náð að sinna því sem skyldi vegna fámennis. Það sama á við um alls kyns úttektir og frumkvæðisathuganir sem hafa þurft að sitja á hakanum,“ segir hún.

Hún segist hafa gert dómsmálaráðuneyti og Alþingi grein fyrir þessari stöðu. 

„Það liggur fyrir að persónuverndarmálefni hafa ekki verið í forgangi hvað varðar úthlutun á fjárlögum. En nú er, vegna þessara grundvallarbreytinga sem eru að eiga sér stað, komið að kaflaskilum. Það er öllum ljóst að stjórnvöld þurfa að gefa í og það þurfi að vera eðlilegur vöxtur í starfsmannafjölda Persónuverndar miðað við umfang verkefna ef við ætlum að standa vörð um persónuvernd einstaklinga.“

Helga bendir á að aðrar evrópskar persónuverndarstofnanir séu að fjölga starfsmönnum til þess að undirbúa breytingar og aukin verkefni samkvæmt nýju löggjöfinni. Þannig sé breska persónuverndarstofnunin að fjölga starfsmönnum úr 450 í 650. Þá telji norska persónuverndarstofnunin, sem hafi sömu verkefni á sinni könnu og Persónuvernd, rúmlega fimmtíu starfsmenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×