Sport

Jeanni og Justin gerðu betur en allir við magnaðar aðstæður í Hvalfirðinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Svakalega dramatískar og flottar aðstæður í Kjósinni.
Svakalega dramatískar og flottar aðstæður í Kjósinni. Mynd/Challenge Iceland 2017/Arnold Björnsson
Jeanni Seymour frá Suður-Afríku og Justin Metzler frá Bandaríkjunum unnu um helgina þríþrautarmótið Iceland Challange sem for fram í Kjósinni.

Þetta var stærsta þríþrautamót sem haldið hefur verið á Íslandi en yfir 200 keppendur voru skráðir til leiks þar á  meðal um 150 erlendir keppendur og 25 atvinnumenn sem eru í fremstu röð í greininni í heiminum.

Þá var Challenge Iceland Íslandsmeistaramót í hálfum járnmanni en Hákon Hrafn Sigurðsson og Rannveig Anna Guicharnaud urðu Íslandsmeistarar um helgina.

Keppnin var haldin við einstakar aðstæður í Hvalfirðinum.  Í keppninni sem er hálfur járnmaður þurftu keppendur að synda 1.9 kílómetra í Meðalfellsvatni, hjóla 90 kílómetra hring um Hvalfjörð og hlaupa síðan 21.1 kílómetra í kringum Meðalfellsvatnið í Kjósinni.

Aðstæðurnar í Kjósinni er þegar farnar að vekja mikla athygli innan þríþrautarheimsins og það þrátt fyrir að aðeins eitt mót sé að baki.

Mynd/Challenge Iceland 2017/Arnold Björnsson
Hér fyrir neðan sést myndband sem sýnir þessa flottu keppnisbraut.





Margfaldir heimsmeistarar hafa látið hafa það eftir sér að þetta sé ein fallegasta keppnisbraut fyrir þríþraut í heiminum. Þetta hefur líka skilað sér í stórauknum áhuga á keppninni en það voru 90 keppendur í fyrra en þeir voru yfir tvö hundruð í ár.

Ísland er nýjasta viðbótin í Challenge fjölskyldunni sem heldur 47 þríþrautakeppnir í 23 löndum út um allan heim. „Ísland er undravert land og náttúrufegurðin mögnuð,” sagði Zibi Szlufcik, forstjóri Challenge fjölskyldunnar í fréttatilkynningu um keppnina.

Jeanni Seymour frá Suður-Afríku fagnar sigri.Mynd/Challenge Iceland 2017/Arnold Björnsson.
Jeanni Seymour frá Suður-Afríku vann kvennaflokkinn og hafði þá betur í baráttunni við hina kanadísku Heather Wurtele sem vann í fyrra. Jeanni er 25 ára gömul og hefur unnið mörg flott þríþrautarmót á ferlinum.

Jeanni Seymour var fyrst eftir sundið en missti Heather Wurtele framúr sér á hjólinu. Hún tryggði sér hinsvegar sigur með því að ná Heather í hlaupinu.

Bandaríkjamaðurinn Justin Metzler var að vinna sitt fyrsta atvinnumannamót og ekki slæmt að gera það við þessar mögnuðu aðstæður í Hvalfirðinum. Svíinn Jesper Svensson var efstur eftir bæði sundið og hjólahlutann en Justin Metzler var sterkastur í hálfmaraþoninu og tryggði sér sigurinn. Trevor Wurtele frá Kanada var annar en Svensson datt alla leið niður í þriðja sætið.



Úrslit í atvinnumannaflokki eru sem hér segir:



Konur

1. Jeanni Seymour (Suður-Afríka) 4:18:02 klukkutímar

2. Heather Wurtele (Kanada) 4:18:22

3. Sarissa De Vries (Holland) 4:37:03

Karlmenn

1. Justin Metzler (Bandaríkin) 3:56:21 klukkutímar

2. Trevor Wurtele (Kanada) 3:58:45

3. Jesper Svensson (Svíþjóð) 3:59:25







Mynd/Challenge Iceland 2017/Arnold Björnsson
Mynd/Challenge Iceland 2017/Arnold Björnsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×