Fótbolti

Januzaj mættur á túlípanahótelið hjá stelpunum okkar

Kolbeinn Tumi Daðason í Rotterdam skrifar
Berglind Björg (til vinstri) og Arna Sif með Belganum leikna.
Berglind Björg (til vinstri) og Arna Sif með Belganum leikna. Instagram @berglindbjorg
Stelpurnar okkar fengu óvæntan gest, og raunar gesti, á túlípanahótelið sitt í Ermelo í gær. Þangað mættu leikmenn Real Sociedad sem gista á sama hóteli á æfingaferð sinni í Hollandi.

Arna Sif Ásgrímsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir biðu ekki boðanna og nýttu tækifærið til myndatöku. Fyrir valinu varð Adnan Januzaj sem gekk í raðir baskanna í sumar.

Januzaj var vonarstjarna Manchester United sem gafst að lokum upp á honum. Hann var í láni hjá Sunderland síðasta tímabil en liðið kolféll úr ensku úrvalsdeildinni. Nú er Belginn kominn í raðir spænska félagsins þar sem hann mun spila í treyju númer átta.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×