Fótbolti

Athyglin verið áskorun fyrir Ingibjörgu sem ætlar sér í atvinnumennsku

Kolbeinn Tumi Daðason í Rotterdam skrifar
Ingibjörg Sigurðardóttir í leiknum gegn Sviss. Hún er að stíga sín fyrstu skref með landsliðinu þótt það sé ekki að sjá á leik hennar.
Ingibjörg Sigurðardóttir í leiknum gegn Sviss. Hún er að stíga sín fyrstu skref með landsliðinu þótt það sé ekki að sjá á leik hennar. Vísir/Getty
Ingibjörg Sigurðardóttir, miðvörður íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu segir markmið sitt alltaf hafa verið að fara í atvinnumennsku. Hún sé þó að einbeita sér að fullu að Evrópumótinu í Hollandi.

Landsliðsþjálfarinn Freyr Alexandersson hafði orð á því á fundi með blaðamönnum í gær að íslenskar stelpur þyrftu að vera fórnfúsar til að komast að hjá stórum félögum í Evrópu. Innhólf hans væri fullt af fyrirspurnum um íslenska leikmenn. Ljóst er að einhverjar þeirra snúa að Ingibjörgu sem hefur spilað vel á mótinu.

„Markmiðið er alltaf að vera í atvinnumennsku og taka það skref,“ sagði Ingibjörg á fundi með blaðamönnum í dag. Hún sé hins vegar með alla einbeitingu á Evrópumótið og svo snúi hún aftur til Breiðabliks og klári Íslandsmótið.

„Ég er ánægð þar og ætla ekki að hugsa út í það (atvinnumennsku) strax,“ sagði Ingibjörg. Hún hafi þó lært afar mikið á Evrópumótinu af því að vera með atvinnumönnum, á borð við Söru Björk og Dagnýju Brynjarsdóttur. Þá hafi hún lært mikið um sína eigin stöðu, miðvörðinn, af kollegum sínum í stöðunni.

„Það var gríðarlega mikið stökk fyrir mig að koma inn á þetta mót og fá alla þessa athygli,“ sagði Ingibjörg.

„Það hefur verið áskorun fyrir mig að tækla það en ég hef lært mikið af því líka.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×