Lífið

Kynntust á Tinder fyrir þremur árum en hittust í fyrsta skipti í beinni útsendingu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frábært augnablik í beinni í Bandaríkjunum.
Frábært augnablik í beinni í Bandaríkjunum.
Michelle Arendas og Josh Avsec kynntust á stefnumóta appinu Tinder fyrir þremur árum og náðu vel saman.

Eftir mörg hundruð samtöl á samfélagsmiðlinum fengu þau loksins að hittast í fyrsta skipti í morgunþættinum Good Morgning America á ABC.

Fyrsta alvöru stefnumótið þeirra er því framundan og það eftir aðeins þrjú ár, en góðir hlutir gerast oft hægt.

Það sem gerir þessa sögu enn merkilegri er að þau eru bæði í Kent háskólanum í Bandaríkjunum og búa á sama svæðinu.

Saga þeirra er mjög merkileg en hér að neðan má þegar þau hittust í fyrsta skipti á Times Square í myndveri Good Morning America.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×