Sport

Ingibjörg bætti Íslandsmet Eyglóar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir.
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir. Vísir/AFP
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir bætti þriggja ára Íslandsmet Eyglóar Óskar Gústafsdóttur þegar hún synti á 28,53 sekúndum í undanrásum í 50 m baksundi í morgun.

Bætti hún metið sem Eygló setti í Danmörku árið 2014 um átta hundraðshluta um sekúndu.

Ingibjörg Kristín hafnaði í 26. sæti í undanrásunum á HM í Búdapest í Ungverjalandi í morgun og komst því ekki í undanúrslit í greininni.

Bryndís Rún Hansen keppir næst Íslendinga á mótinu en hún syndir í 100 m flugsundi á morgun.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×