Handbolti

Einar Pétur hættur í Haukum: Kemur til greina að hætta í handbolta

Einar Pétur í leik með Haukum.
Einar Pétur í leik með Haukum. Vísir
Einar Pétur Pétursson, hornamaður úr Haukum, er hættur hjá félaginu en það staðfesti hann í samtali við Vísi í dag. Fimmeinn.is greindi fyrst frá málinu.

Einar Pétur sagði í samtali við Vísi að hann væri að skoða sín mál en að hann hefði hætt hjá Haukum þar sem að félagið væri með tvo aðra leikmenn í hans stöðu.

„Það er ekki alveg víst hvað verður. Ég er að meta hvaða möguleikar standa mér til boða,“ sagði Einar Pétur sem útilokar ekki að leggja skóna á hilluna.

„Það er líka möguleiki,“ sagði hann.

Einar Pétur varð á sínum tíma Íslandsmeistari með Haukum en flutti til Danmerkur síðasta haust. Hann kom svo aftur um mitt tímabil og kláraði það með Haukum en alls skoraði hann fimm mörk í fjórtán leikjum í vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×