Fótbolti

Sjáðu sigurmark Maribor gegn FH

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Marcos Tavares skoraði sigurmark Maribor.
Marcos Tavares skoraði sigurmark Maribor. Vísir/Getty
FH stendur ágætlega að vígi fyrir síðari leik sinn gegn slóvensku meisturunum í NK Maribor eftir 1-0 tap á útivelli í gærkvöldi.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan sem og sigurmark Maribor.

Brasilímaðurinn Marcos Tavares, sem einnig er fyrirliði Maribor, skoraði eina mark leiksins. Hann er 33 ára sóknarmaður sem einnig er leikja- og markahæsti leikmaðurinn í sögu félagsins.

Maribor átti fleiri marktilraunir í leiknum, sextán gegn fimm, en hættulegasta færi heimamanna í fyrri hálfleik var bylmingsskot í slánna.

Síðari leikur liðanna fer fram á Kaplakrikavelli á miðvikudag í næstu viku og verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×