Bíó og sjónvarp

Þurftu að fresta frum­sýningu á Undir trénu vegna Fen­eyjar­há­tíðarinnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Steinþór Hróar Lára Jóhanna Jónsdóttir eru meðal aðalleikara myndarinnar.
Steinþór Hróar Lára Jóhanna Jónsdóttir eru meðal aðalleikara myndarinnar.
Til stóð að frumsýna kvikmyndina Undir trénu þann 23. ágúst nk. en eins og fram kom á blaðamannafundi í Feneyjum í dag þá hefur myndin verið valin til að keppa til verðlauna á hátíðinni í flokknum Orizzonti, fyrst íslenskra kvikmynda í fullri lengd.

Aðstandendur myndarinnar eru tilneyddir til að fresta frumsýningu hér heima um tvær vikur, eða til 6. september 2017.

Hafsteinn Gunnar Sigurðsson (Á annan veg / 2011, París norðursins / 2014) er leikstjóri  myndarinnar og skrifaði handritið ásamt Huldari Breiðfjörð.

„Þetta er gríðarlega mikill heiður, bæði fyrir mig sem leikstjóra sem og alla þá sem að myndinni standa. Ég er hrikalega spenntur að sýna myndina og ekki skemmir þessi vettvangur fyrir. En svo er maður smá stressaður líka. Það fylgir alltaf,” segir Hafsteinn Gunnar Sigurðsson.

Undir trénu verður frumsýnd á Íslandi 6. september en Feneyjahátíðin er frá 30. ágúst til 9. september.
Framleiðendur myndarinnar eru Grímar Jónsson, Sindri Páll Kjartansson og Þórir Snær Sigurjónsson fyrir hönd Netop Films á Íslandi og erlendir meðframleiðendur koma frá Danmörku, Póllandi og Þýskalandi.

„Það er gaman að vera í skýjunum yfir því að þurfa að fresta frumsýningu. Feneyjarhátíðin er mjög ströng þegar kemur að þessu, þ.e.a.s. þeir krefjast þess að sýning myndarinnar á hátíðinni sé heimsfrumsýning. Oft fá framleiðendur undantekningu á að sýna myndina í heimalandinu fyrst en það var algjörlega útilokað. Það kom því ekki annað til greina en að fresta frumsýningu hér heima. Heiðurinn og það sem er í húfi á Feneyjarhátíðinni gerði þá ákvörðun mjög auðvelda. Þetta er elsta kvikmyndahátíð í heimi og ein sú virtasta,“ segir Grímar Jónsson.

Með aðalhlutverk í Undir trénu fara Steinþór H. Steinþórsson (Steindi), Edda Björgvinsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Selma Björnsdóttir, Þorsteinn Bachmann og Lára Jóhanna Jónsdóttir.


Tengdar fréttir

Fyrsta íslenska stuttmyndin sem keppir í Feneyjum

„Það er rosalega leiðinlegt að komast ekki út,“ segir Katrín Ólafsdóttir. Hún framleiðir stuttmyndina Líf og dauði Henry Darger sem er fyrsta íslenska stuttmyndin sem hefur verið valin á hina virtu kvikmyndahátíð á Feneyjum. Þar verður hún sýnd dagana 8. og 9. september en Katrín verður fjarri góðu gamni því henni tókst ekki fá styrk til að kynna myndina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×