Lífið

HM skór Arons komnir á uppboð til styrktar Darra

Aron leikur í dag
Aron leikur í dag
Knattspyrnumaðurinn Aron Jóhannsson hefur gefið tvenn skópör til styrktar fjölskyldu Darra Magnússon sem berst við bráðahvítblæði. Darri hefur verið á Barnaspítala Hringsins frá áramótum.

Aron er leikmaður Werder Breman og einnig bandaríska landsliðsins. Skórnir sem um ræðir voru með í för þegar Aron keppti fyrir Bandaríkin á HM í Brasilíu árið 2014 og eru sérmerktir Johannsson.

Nú er hafið uppboð á styrktarsíðu Darra en verðmæti skóna er um fjörutíu þúsund krónur.

Uppboðið endar Mánudagskvöldið 31. júlí kl.22:00 eða stuttu eftir leik Breiðabliks og Fjölnis. Síðasta boð í treyju er 21:59 en öll boð eftir það eru ógild.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×