Erlent

Hylja Grenfell-turninn á meðan rannsókn fer fram

Kjartan Kjartansson skrifar
Alls voru 129 íbúðir í Grenfell-turninum sem brann 14. júní.
Alls voru 129 íbúðir í Grenfell-turninum sem brann 14. júní. vísir/getty
Grenfell-turninn í London sem brann í júní verður hulinn með dúk til að varðveita sönnunargögn fyrir tæknimenn sem rannsaka bygginguna, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.

Að minnsta kosti áttatíu manns fórust í brunanum. Umsjónarmaður byggingarinnar segir að niðurrif turnins hefjist að líkindum ekki fyrr en seint á næsta ári.

Íbúar á 33 íbúðum í húsinu gætu hins vegar endurheimt einhverjar eigur sínar. Telur umsjónarmaðurinn að vinna við endurheimt eigna gæti staðið yfir þangað til í nóvember á þessu ári. Sumar íbúðirnar eru algerlega ósnortnar en aðrar eru gjöreyðilagðar.

Sakamálarannsóknin á brunanum gæti jafnframt staðið yfir þangað til í janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×