Íslenski boltinn

Viktor Örn lánaður til ÍA

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viktor Örn á nýja heimavellinum.
Viktor Örn á nýja heimavellinum. mynd/ía
ÍA hefur fengið varnarmanninn Viktor Örn Margeirsson á láni frá Breiðabliki.

Skagamenn sitja í tólfta og neðsta sæti Pepsi-deildar karla með aðeins níu stig, fjórum stigum frá öruggu sæti.

Varnarleikur ÍA hefur verið slakur í sumar og aðeins ÍBV hefur fengið á sig fleiri mörk en Skagamenn.

Viktor er uppalinn Bliki og hefur leikið 17 leiki með Breiðabliki í Pepsi-deildinni undanfarin þrjú ár. Hann lék áður með Augnabliki og HK.

Viktor fær leikheimild með ÍA á morgun. Næsti leikur Skagamanna er gegn Valsmönnum á mánudaginn kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×