Lífið

Allt annað að sjá Macauley Culkin í dag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Macauley Culkin virðist vera á góðum stað í dag.
Macauley Culkin virðist vera á góðum stað í dag.
Það muna eflaust allir eftir Home Alone myndunum en þar fór Macaulay Culkin með aðalhlutverkið og lék hann litla drenginn Kevin McCallister.

Culkin varð strax í kjölfarið mikil barnastjarna og hefur átt við töluverð vandræði að stríða alla götur síðan. Hann hefur lengi glímt við fíkniefnadjöfulinn og hafa fjölmiðlar um heim allan reglulega birt myndir af Culkin þar sem hann lítur vægast sagt illa út.

Hann virðist aftur á móti vera á góðum stað í vikunni og birtist mynd af kappanum á Twitter á dögunum þar hann var að versla sér sígarettur á bensínstöð.

Hér að neðan má sjá umrædda mynd og lítur leikarinn virkilega vel út þessa dagana.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×