Golf

Ólafía í 6. sæti eftir frábæra spilamennsku í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafía Þórunn er efsti Evrópubúinn á Opna skoska meistaramótinu í golfi.
Ólafía Þórunn er efsti Evrópubúinn á Opna skoska meistaramótinu í golfi. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék einstaklega vel á öðrum degi Opna skoska meistaramótsins í golfi sem fer fram á North Ayrshire í Skotlandi. Mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni í golfi.

Ólafía lék hringinn í dag á tveimur höggum undir pari og er í 6. sæti. Hún er jafnframt efsti Evrópubúinn á mótinu.

mynd/skjáskot af vef lpga
Ólafía lék hringinn í gær á einu höggi yfir pari. Hún byrjaði svo á því að fá skolla á fyrstu tveimur holunum í dag.

Ólafía lét það ekki á sig fá, fékk par, fugl og loks örn á næstu þremur holum. Hún fékk svo einn fugl til viðbótar á fyrri níu holunum.

Ólafía byrjaði seinni níu holurnar á því að fá tvö pör. Síðan komu tveir skollar en Ólafía núllaði þá út með tveimur fuglum í röð.

Hún lék svo síðustu þrjár holurnar á parinu og hélt 6. sætinu. Eftir gærdaginn var Ólafía í 37.-54. sæti.

Cristie Kerr frá Bandaríkjunum er með forystu en hún er samtals á fimm höggum undir pari.

Fylgst var með gangi mála í dag í beinni textalýsingu á Vísi. Hana má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×