Bílar

Nýr Kia Optima SW í Plug-in Hybrid útfærslu

Finnur Thorlacius skrifar
Kia Optima fæst nú einnig í Plug In Hybrid út6færslu.
Kia Optima fæst nú einnig í Plug In Hybrid út6færslu.
Kia hefur kynnt til leiks nýjan Optima Sportwagon í Plug-in Hybrid útfærslu. Bíllinn er með tengiltvinnvél sem samanstendur af 68 kílówatta rafmótor og tveggja lítra GDI bensínvél. Samanlagt skilar tengiltvinnaflrásin 205 hestöflum og 375 Nm í togi.

Rafmótorinn skilar 49 hestöflum ef ekið er einungis á rafmagninu. Bíllinn er með 62 km drægni á rafmagninu við bestu hugsanlegu aðstæður sem er með því lengsta sem þekkist í flokki tengiltvinnbíla. Útblástur Kia Optima SW Plug-in Hybrid er einungis 33 g/km sem er lægsta koltvísýringslosun í þessum stærðarflokki bíla.

Kia hefur lagt mikið í að ná fram sem bestum aksturseiginleikum í bílnum og góðum þægindum í akstrinum. Kia Optima SW Plug-in Hybrid er vel búinn öllum nýjustu aksturs- og öryggiskerfum frá Kia. Nýr 8 tommu snertiskjár er áberandi í fallegu innanrými bílsins og býður upp á tengimöguleika við Android Auto og Apple CarPlay.

Bíllinn er mjög rúmgóður fyrir farþega og farangursrýmið er alls 440 lítrar með aftursætin í uppréttri stöðu sem er með því besta í þessum stærðarflokki. Bíllinn verður kynntur í byrjun september hjá Bílaumboðinu Öskju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×