Holland tryggði sér sæti í undanúrslitin

Elías Orri Njarðarson skrifar
Leikmenn Hollands fagna öðru marki sínu í dag
Leikmenn Hollands fagna öðru marki sínu í dag Vísir/Getty
Holland sigraði Svíþjóð í 8-liða úrslitum á Evrópumóti kvenna í fótbolta sem fram fer í Hollandi.

Jafnræði var með liðunum í leiknum en á 33. mínútu skoraði Lieke Martens beint úr aukaspyrnu og kom Hollandi yfir í leiknum.

Heimastúlkur fóru því með forskot inn í síðari hálfleikinn.

Strax eftir tveggja mínútna leik í seinni hálfleik fékk Svíþjóð dauðafæri til þess að jafna leikinn en inn vildi boltinn ekki.

Á 64. mínútu skoraði Vivianne Miedema annað mark Hollands í leiknum, staðan orðin 2-0 og róðurinn orðinn þungur fyrir Svíþjóð.

Bæði lið fengu fleiri færi til þess að skora en það gekk ekki að koma boltanum í netið og 2-0 sigur Hollands staðreynd og fara þær því áfram í undanúrslitin. Þar munu hollensku stelpurnar mæta annaðhvort Englandi eða Frakklandi.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira