Lífið

Kate Hudson búin að raka af sér allt hárið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kate Hudson er þekkt fyrir sína ljósu lokka.
Kate Hudson er þekkt fyrir sína ljósu lokka. vísir/getty
Leikkonan Kate Hudson er komin með nýja klippingu en hún hefur rakað af sér svo gott sem allt hárið.

Erlendir miðlar fjalla töluvert um málið og hafa komið fram tvær myndir af Hudson með nýju hárgreiðsluna.

Hudson þurfti að raka á sér hárið fyrir hlutverk sem hún fer með í kvikmyndinni Sister sem kemur út á næsta ári.

Einn af handritshöfundum kvikmyndarinnar er tónlistarkonan Sia en hún deilir einnig mynd af nýju hárgreiðslu Hudson.

Hér að neðan má sjá myndir af Hudson sem teknar voru í vikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×