Matur

Óáfengur Watermelon Firecracker: Ávextir og ber það svalasta nú

Sæunn Gísladóttir skrifar
Sævar Örnólfsson, barþjónn á Sushi Social.
Sævar Örnólfsson, barþjónn á Sushi Social. Vísir/Andri Marinó

Sumarið nær hámarki sínu núna um helgina og því tilvalið að gera sér sumarlegan kokteil. Fréttablaðið fékk sérfræðinga frá Sushi Social, Pablo Discobar og Slippbarnum til að töfra fram nokkra kokteila fyrir árstíðina.

Sævar Örnólfsson, barþjónn á Sushi Social, reyddi fram vatnsmelónudrykkinn Watermelon Firecracker og Elderflower drykkinn Popsicle.

 

 

Óáfengur Watermelon Firecracker.Vísir/Andri Marinó

Óáfengur Watermelon Firecracker

Nokkrir bitar af vatnsmelónu

7,5cl af trönuberjasafa

4cl af engifersírópi

3cl lime safi



Hristist með klökum og síað ofan í glas með klökum.

Engifer síróp

50/50 af venjulegum sykri og vatni

t.d. 500 ml af vatni og 500 g af sykri

200g engifer

Vatn og sykur sett í pott og beðið þar til sykurinn leysist upp, hræra vel í öðru hvoru.

Það sett í blandara og látið liggja í smá í kælingu, svo er engiferið síað úr sírópinu.



Popsicle.Vísir/Andri Marinó

Popsicle

3cl Amaretto

3cl Elderflower líkjör

3cl Lime safi

3cl Ananassafi

3cl Sykursíróp



Hristist með klökum og síað ofan í glas með klökum.

Sykur síróp

50/50 af venjulegum sykri og vatni t.d. 500 ml af vatni og 500 g af sykri, sett í pott og beðið þar til sykurinn leysist upp, hræra vel í öðru hvoru og sett svo í kælingu.





Alana Hudkins barþjónn á Slippbarnum.Vísir/Andri Marinó

Hjá Slippbarnum töfraði Alana Hudkins sumarlega drykki fram. Að sögn Alönu er eitt mest spennandi fyrirbærið í sumar drykkir með litlu áfengismagni. Þeir sem eru að fá sér kokteil hafi ekki endilega áhuga á að vera farnir að finna á sér þegar þeir eru hálfnaðir með drykkinn.

Einnig getur hátt verð á áfengi hér á landi leitt til þess að kokteilar verða mjög dýrir. Með því að nota minna áfengismagn í drykki og láta viðskiptavini vita af því getum við gert fleira fólki kleift að smakka hágæða drykki án þess að hafa neikvæð áhrif á veskið þeirra (eða lifrina). Á nýjum matseðli Slippbarsins, sem mun líta dagsins ljós í næsta mánuði, munu ódýrari drykkir með lægra áfengismagni verða í boði.

Hawaian.Vísir/Andri Marinó

Hér er einn heitasti drykkur sumarsins að mati Alönu:

Hawaian

Highball eða Collins glas

15ml Tanqueray Rangpur gin

15ml Sacred Rosehip Cup (eða annar líkjör eins og Campari)

15ml Cocchi americano white vermouth

~100ml (1/2 flaska) Thomas Henry cherry blossom tonic

Áfengið er sett yfir ís í glas. Tóniki hellt ofan í og hrært í. Borið fram með niðurrifnum greipávexti.

Digital Love.Vísir/Andri Marinó

Hér mælir hún svo með einum óáfengum:

Digital Love (óáfengur)

Hátt glas

~1/2 cm ferskt engifer

60ml hibiscus te*

30ml ferskur lime safi

15ml ananassíróp**

15ml kanilsíróp***

Örlítið sódavatn



* Til að gera hibiscus te er tekin handfylli af þurrkuðum hibiscus blómum og setið út í heitt vatn og látið malla í 15-20 mínútur, síið svo og kælið. Hægt er að kaupa hibiscus í verslunum sem selja taílenskan mat.

** Til að búa til ananassíróp er jafnt magn af ananas og hvítum sykri soðið á lágum hita þangað til djúsinn og sykurinn hafa orðið að sírópi, síið og kælið.

*** Kanilsíróp: blandið saman 1,5 hlutum af sykri og einum hlut af vatni og hitað upp. Bætið við kanilstöngum og hitið undir suðumarki í um 10 mínútur þar til sykurinn leysist upp. Síið og kælið. Nota má kanilstangirnar aftur sem skraut.

Engiferið er kramið í kokteilmixara og svo er öllu öðru bætt út í nema sódavatni. Hristið með klökum og síið í glas, bætið ofan á sódavatni og hrærið hægt. Skreytið með blómi eða myntu.

Teitur Sciöth barþjónn hjá Pablo Discobar.Mynd/Sigurjón Ragnar

Teitur Sciöth barþjónn hjá Pablo Discobar segir mikið um berkjakokteila í sumar. 

„Fólk virðist leita mikið í berjakokteila þetta sumar og þess vegna notum við helling af hindberjum á Pablo Discobar," segir Teitur.

Blushing Ginger.Mynd/Sigurjón Ragnar

Teitur býður upp á engiferdrykk

Blushing Ginger: (óáfengur)

20 ml heimagert hindberjasíróp

20 ml ferskur lime safi

Toppað með engiferbjór

Skreytt með mintu og blómum

Hindberja daiquiri.Mynd/Sigurjón Ragnar

Hinn drykkur Teits er frosinn slush.

Hindberja daiquiri:

45 ml hvítt romm

30 ml blitsuð hindber

25 ml heimagert hindberjasíróp

25 ml ferskur lime safi

1 skúpa mulinn klaki



Hendið í blandara. Skreytið með kirsuberjum, mintu og fíneríi.

Áfengi frá Norðurlöndum í tísku

Erlendis eru klassísk trend sem koma sterk inn í sumar til að mynda litlar regnhlífar ofan í drykkjunum og margarítur, sangríur og Aperol Spritz njóta mikilla vinsælda þessa árstíð.

USA Today greinir frá því að það sé exótískt þema í sumardrykkjum í Bandaríkjunum, hvort sem um ræðir glösin, regnhlífarnar eða drykkinn sjálfan. Einnig koma ávextir og ber eftir árstíð þar inn en í Chicago er til dæmis brómberja mojito aðal æðið. Í Bretlandi prófa mestu kokteilaðdáendurnir nú að skipta út Aperol Spritz fyrir Spritz Cynar sem er einnig ítalskt líkjör.

Cynar er dekkra líkjör en er einnig biturt á bragðið. Telegraph greinir frá þessu og bætir við að bretar séu að skipta út vodka og tónik fyrir vermouth og tónik sem er talið mun bragðmeira áfengi. Bretar eru miklir aðdáendur freyðivíns og hefur sala á því aukist um 80 prósent á síðustu fimm árum.

Sérfræðingar Telegraph mæla þó með að skipta út freyðivíninu fyrir franciacorta sem er helsta tískan núna í Mílanó á Ítalíu. Einnig mæla sérfræðingar Telegraph með áfengi frá Norðurlöndum sem nýtist okkur Íslendingum vel, þar sem við þurfum ekki einu sinni að flytja það inn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×