Innlent

Eldur í dekkjastafla í Bíldshöfða

Samúel Karl Ólason skrifar
Töluverðan reyk leggur nú frá Bíldshöfða.
Töluverðan reyk leggur nú frá Bíldshöfða. Vísir/Óskar Ófeigur
Töluverðan reyk leggur nú frá Bíldshöfða þar sem eldur hefur kviknað í dekkjastafla. Staflinn mun vera á afmörkuðu svæði og lítil hætta er á að hann dreifi sér. Einn bíll var sendur á vettvang samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Eldurinn sást úr sjúkrabíl sem var þarna á ferðinni. Hinn mikli reykur sem berst frá eldinum er vegna þess að dekk eru að brenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×