Innlent

Ógnaði fólki með sprautunál

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/getty
Lögreglan handtók á fjórða tímanum í nótt mann sem hafði hótað starfsfólki verslunar í Reykjavík með sprautunál. Maðurinn er einnig grunaður um þjófnað, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki kemur fram í hvaða verslun atvikið átti sér stað eða hvort einhverjum hafi orðið meint af.

Þá segir í dagbókinni að tilkynnt hafi verið um hópslagsmál í miðbænum laust fyrir klukkan hálf fimm í nótt. Mikill hiti hafi verið í mannskapnum og að minnsta kosti þrír lögreglubílar hafi verið sendir á staðinn. Slagmálunum hafi lokið án teljandi vandræða og enginn handtekinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×