Bíó og sjónvarp

Eftirsótt frumsýning Game of Thrones í Smárabíó

Samúel Karl Ólason skrifar
Áhorfendur munu geta unnið til vinninga á sýningunni frá Nexus, Viking brugghús, Coca-Cola og Vodafone.
Áhorfendur munu geta unnið til vinninga á sýningunni frá Nexus, Viking brugghús, Coca-Cola og Vodafone.
Stöð 2 býður áskrifendum á sérstaka frumsýningu á nýjustu þáttaröð Game of Thrones á sunnudagskvöldið. Miðarnir á sýninguna, sem fer fram í Smárabíó, eru uppurnir en enn verður hægt að fá miða með því að hlusta á útvarpið á næstu dögum. 250 miðar fóru á innan við hálftíma eftir að opnað var fyrir skráningu.

Enn eru þó nokkrir miðar í boði sem hægt verður að nálgast með því að hlusta á Bylgjuna, FM og X-ið frá og með morgundeginum. Það má velta fyrir sér hvort að baráttan um þá miða sem eftir eru verði jafn harðsnúin og baráttan um Westeros.

Til að hita upp fyrir nýjustu þættina verður síðasti þáttur sjöttu þáttaraðar sýndur á undan nýja þættinum. Mæting er klukkan ellefu á sunnudagskvöldið og verður nýi þátturinn sýndur klukkan eitt. Þátturinn verður einnig sýndur á Stöð 2 á sama tíma.

Áhorfendur munu geta unnið til vinninga á sýningunni frá Nexus, Viking brugghús, Coca-Cola og Vodafone.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×