Handbolti

Fjögur íslensk lið í Evrópukeppnum næsta vetur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vignir Stefánsson og félagar verða í pottinum þegar dregið verður í EHF-bikarnum 18. júlí næstkomandi.
Vignir Stefánsson og félagar verða í pottinum þegar dregið verður í EHF-bikarnum 18. júlí næstkomandi. vísir/andri marinó
Fjögur lið úr Olís-deild karla í handbolta taka þátt í Evrópukeppni næsta vetur.

Íslands- og bikarmeistarar Vals taka þátt í EHF-bikarnum sem og deildarmeistarar FH og Afturelding. Valur er í efri styrkleikaflokki en FH og Afturelding í neðri styrkleikaflokki.

ÍBV tekur þátt í Áskorendabikar Evrópu. Eyjamenn hefja leik í 3. umferð og verða í efri styrkleikaflokki.

Valsmenn tóku þátt í Áskorendabikarnum á síðasta tímabili og komust alla leið í undanúrslit þar sem þeir féllu á umdeildan hátt út fyrir Potaissa Turda frá Rúmeníu.

Dregið verður í Evrópukeppnunum 18. júlí í Vín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×