Íslenski boltinn

Segir jafnrétti milli karla og kvenna í íslenska boltanum: „Það má læra margt af Íslandi“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gemma Fay er ánægð með dvölina á Íslandi.
Gemma Fay er ánægð með dvölina á Íslandi. vísir/eyþór
Skoski landsliðsmarkvörðurinn Gemma Fay, leikmaður Stjörnunnar í Pepsi-deild kvenna, kveðst virkilega ánægð með íslenska boltann, jafnréttið sem í honum ríkir og ákvörðun sína að koma hingað og spila.

Þessi 35 ára gamli reynslubolti segir frá þessu í ítarlegu viðtali við The Guardian þar sem hún ræðir íslenska boltann og EM í Hollandi sem hefst eftir nokkra daga.

Fay meiddist illa í byrjun árs og missti þá byrjunarliðssæti sitt hjá Gasgow City. Hún óttaðist það versta sem var að missa einnig sæti sitt í skoska byrjunarliðinu rétt fyrir EM 2017.

Hún ákvað þá að gera eitthvað öðruvísi til að koma sér aftur í gang. Fay pakkaði niður í tösku og hélt til Íslands. Sú skoska hefur vissulega ekki kveikt í Pepsi-deild kvenna og missti sæti sitt hjá Stjörnunni líka um tíma en mun samt sem áður leiða skoska landsliðið út á völlinn á EM.

„Ég kom út úr þessum meiðslum sterkari en nokkru sinni fyrr. Ég skipti um félag og hef öðlast meiri reynslu sem hefur verið jákvæð. Þessi skipti hafa hjálpað mér að þroskast sem persóna líka. Það kemur alltaf eitthvað gott úr því slæma,“ segir Fay.

Markvörðurinn var búin að spila á Bretlandseyjum allan sinn feril áður en hún samdi við Stjörnuna en Fay var búin að vera í Skotlandi frá árinu 2007. Að spila í nýrri deild gaf henni tækifæri á að upplifa nýja hluti.

„Þetta er búið að vera frábært fyrir mig því leikmenn í íslensku deildinni er mjög líkamlega sterkir. Leikstíllinn er öðruvísi og stuðningurinn frábær. Það má læra margt af Íslandi,“ segir Fay sem er ánægð með jafnréttið sem ríkir í íslenska fótboltanum.

„Það er frábært hvernig Ísland sér um kvennafótboltann. Öll bæjarfélög eru með lið og allir krakkarnir í bænum spila fyrir það lið. Jafnrétti ríkir á milli karla og kvenna. Aðstæðurnar eru frábærar og stuðningurinn líka. Það má læra margt af því sem er gert hérna,“ segir Gemma Fay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×