Íslenski boltinn

Fyrrverandi leikmaður Manchester City til KR

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Betsy Hassett í leik með Manchester City.
Betsy Hassett í leik með Manchester City. vísir/getty
KR hefur samið við nýsjálensku landsliðskonuna Betsy Hassett um að leika með liðinu út tímabilið í Pepsi-deild kvenna.

Hassett, sem er 26 ára, lék síðast með Ajax í Hollandi. Hún hefur einnig leikið með Sand og Werder Bremen í Þýskalandi, Manchester City á Englandi og Amazon Grimstad í Noregi.

Hassett, sem lék í háskóla í Kaliforníu í Bandaríkjunum, hefur leikið yfir 80 landsleiki fyrir Nýja-Sjáland og skorað átta mörk.

KR er í harðri fallbaráttu í Pepsi-deildinni. KR-ingar eru í 8. sæti deildarinnar með sex stig, tveimur stigum frá fallsæti.

Hassett leikur væntanlega sinn fyrsta leik fyrir KR þegar liðið mætir Grindavík á útivelli 10. ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×