Innlent

Segir erfitt að bera saman verðlag Costco við aðrar búðir

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Erfitt er að bera saman verð versunarinnar Costco segir Sigurlaug Hauksdóttir, verkefnastjóri ASÍ.
Erfitt er að bera saman verð versunarinnar Costco segir Sigurlaug Hauksdóttir, verkefnastjóri ASÍ. Vísir/EPA
Sigurlaug Hauksdóttir, verkefnisstjóri hjá ASÍ var í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag þar sem rætt var um verðmun á milli verslana. Vísaði Sigurlaug í nýafstaðinna verðkönnun sem gerð var í síðustu viku þar sem ferskvörur voru skoðaðar sérstaklega á milli verslana.

Ástæðan fyrir því að að fersk vara var skoðuð er vegna þess að erfiðara er, samkvæmt Sigurlaugu, að bera saman verðlag Costco við aðrar búðir þar sem pakkningarnar séu svo stórar og vöruúrval þar sé annarskonar.

„Við ákváðum að skoða það sem er yfirleitt selt í kílóatali eða lítratali,“ segir Sigurlaug og nefnir að könnunin sé ekki verið að skoða verðþróun.

Sigurlaug Hauksdóttir var í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag.ASÍ
„Ég get ekki sagt til um hvort verð hafi hækkað eða lækkað á landinu af því við erum eingöngu að skoða, til dæmis hvað kostar ódýrasta kílóið af eplum þegar neytandinn fer í búðina á þessum tímapunkti þannig að ég get ekki sagt til um það út frá þessum tölum hvort að vöruverð hafi hækkað eða lækkað. Við gerum það hins vegar í vörukörfunni okkar. Þá berum við saman hverja búð fyrir sig og erum að skoða verðþróun,“ sagði Sigurlaug. Hún nefnir að aðferðirnar hafi virkað vel hingað til.

„Þessi aðferð okkar, sýnist okkur hefur skilað því nokkurn veginn að verðþróun er á svipuðu róli og hagstofan gefur út í sínum tölum. Við beitum þessari aðferð þar til og ef að við finnum betri en ég held að þetta sé næst sannleikanum,“ segir Sigurlaug jafnframt.

Viðtalið við Sigurlaugu má heyra í spilaranum að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×