Sport

Íslensk stelpa dýrasta sundknattleikskonan í sögu íþróttarinnar í Grikklandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Christina Tsoukalas.
Christina Tsoukalas. Mynd/Heimasíða Olympiakos
Christina Tsoukalas skrifaði á dögunum undir þriggja ára samning við stórlið Olympiakos, áttfalda Grikklandsmeistara í sundknattleik en samningurinn vakti mikla athygli í Grikklandi.

Christina Tsoukalas, eða Kristín Krisúla Tsoukala, er ein besta sundknattleikskona Grikkja, og hefur þrátt fyrir ungan aldur, spilað með landsliðinu í áratug. Hún er 185 sm á hæð og spilar sem varnarmaður.

Christina Tsoukalas er bæði með íslenskan og grískan ríkisborgararétt en hún er dóttir Þóru Bjarkar Valsteinsdóttur og Makis Tsoukalas. Hún er fædd árið 1991 og verður því 27 ára gömul á þessu ári.

Móðir hennar var stolt af stelpunni sinni á fésbókinni. „Næstu 3 árin mun Kristín leika með sundknattleiksliði Olympiakos, stærsta íþróttafélagi Grikklands. Hún skrifaði undir samning sem gerir hana að dýrustu sundknattleikskonu í sögu þessarar íþróttar í Grikklandi,“ skrifaði Þóra Björk Valsteinsdóttir.





Christina Tsoukalas og Olympiakos hafa verið í samningaviðræðum í nokkurn tíma en loksins var samningurinn í höfn og Christina þakkar forráðamönnum Olympiakos fyrir að sýna sér bæði mikinn áhuga og mikinn skilning.

Olympiakos sagði frá samningi Christinu Tsoukalas á heimasíðu og birti fullt af myndum af nýja leikmanni sínum. Það eru bundnar miklar væntingar við komu hennar en Olympiakos hefur unnið fjóra meistaratitla í röð í Grikklandi en það hefur ekki gengið eins vel í Evrópukeppninni.

Í fréttinni um Christinu Tsoukalas kemur fram að þessi samningur muni breyta landslaginu í evrópskum og grískum sundknattleik. Hún lék áður með liði NC Vouliagmeni og varð meðal annars tvisvar sinnum Evrópumeistari félagsins.

Christina Tsoukalas hefur verið lengi í fremstu röð í grískum sundknattleik og hún hefur unnið bæði heimsmeistaragull (2011) og tvö silfur á Evrópumóti (2010 og 2012) með gríska landsliðinu.

Christina Tsoukalas handsalar samninginn.Mynd/Heimasíða Olympiakos



Fleiri fréttir

Sjá meira


×