Tíska og hönnun

Tískan í stúkunni á Wimbledon

Guðný Hrönn skrifar
Kate Middleton klæddist doppóttum kjól frá Dolce & Gabbana.
Kate Middleton klæddist doppóttum kjól frá Dolce & Gabbana. Vísir/Getty
Wimbledon-mótið í tennis stendur þessa stundina yfir í Lundúnum og af því tilefni flykkist fólk á völlinn til að fylgjast með tennisstjörnum keppa, hvort sem það hefur áhuga á íþróttinni eða ekki.

Og stjörnurnar nýta áhorfendastúkuna gjarnan sem tískupall og mæta í sínu fínasta pússi eins og sjá má á meðfylgjandi myndum hér fyrir neðan.

David Beckham var flottur á því í jakka frá Polo Ralph Lauren.
Fyrirsætan Poppy Delevingne klæddist stílhreinum bleiserjakka úr kasmírull og var með tösku með hlébarðamynstri. Jakkinn er úr smiðju Ralphs Lauren.
Anna Wintour lætur sig ekki vanta á Wimbledon enda er hún hrifin af tennis.
Söngkonan Ellie Goulding mætti í afar flottum ljósbláum kjól frá Gucci.
Pippa Middleton var glæsileg í fölbleikum blúndukjól frá merkinu Self-Portrait.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×