Formúla 1

Honda og Sauber skilja að borði og sæng fyrir giftingu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Brotthvarf Monisha Kaltenborn virðist þýða að Sauber þurfi að leita að nýrri vél fyrir næsta tímabil.
Brotthvarf Monisha Kaltenborn virðist þýða að Sauber þurfi að leita að nýrri vél fyrir næsta tímabil. Vísir/Getty
Honda og Sauber höfðu fyrir skömmu tilkynnt að til stæði að setja Honda vél um borð í Sauber bílinn strax á næsta ári. Nú virðist sem upp úr hafi slitnað með brotthvarfi Monisha Kaltenborn liðsstjóra Sauber, sem yfirgaf liðið fyrir Bakú kappaksturinn.

Vélastjóri Honda, Yusuke Hasegawa var spurður um stöðu samningsins á blaðamannafundi fyrir austurríska kappaksturinn. Hann svaraði því til að samningurinn væri á milli Honda og Sauber og hann sæi ekki að breyting á forystu liðsins myndi breyta samningnum.

Undirtónn í slúðri helgarinnar á Spielbergbrautinni í Austurríki er sá að Honda eigi í stirðu sambandi við annað Formúlu 1 lið, nú Sauber en ekki McLaren. Samband McLaren og Honda hefur verið afar stirt og fjölmiðlar notað talsvert til að koma skotum á báða aðila. Mclaren liðar hafa þó verið duglegri að skjóta á Honda.

Hasegawa heyrði víst fyrst af brotthvarfi Kaltenborn frá Sauber á sama tíma og allir aðrir, í tilkynningu til fjölmiðla gefinni út um miðnætti daginn sem atburðirnir áttu sér stað sem leiddu til þess að Kaltenborn fór frá liðinu.

Heimildir þýska blaðsins Auto Bild, herma að upp úr samningum hafi slitnað á milli Honda og Sauber við brotthvarf Kaltenborn.

Nú er orðið ljóst að Fred Vasseur, fyrrum liðsstjóri Renault mun taka við keflinu hjá Sauber. Hann þarf nú að leita að nýrri vél fyrir næsta tímabil. Ætli hann snúi sér til Ferrari sem áður hefur skaffað Sauber vélar og gerir nú? Hann gæti einnig leitað til fyrrum vinnuveitanda síns, Renault.


Tengdar fréttir

Monisha Kaltenborn hætt hjá Sauber

Monisha Kaltenborn hefur yfirgefið stöðu sína sem liðsstjóri Sauber. Kaltenborn varð fyrsta konan til að verða liðsstjóri í Formúlu 1 árið 2012 þegar hún tók við stöðunni hjá Sauber.

Bílskúrinn: Allt það helsta frá Austurríki

Valtteri Bottas á Mercedes vann sína aðra keppni á tímabilinu og ferlinum í Austurríki. Vísir fer yfir allt það helsta frá níunda kappakstri tímabilsins í Bílskúrnum.

Bottas: Ég vil auðvitað blanda mér í titilbaráttuna

Valtteri Bottas vann sinn annan kappakstur á felrinum í dag í Austurríki. Hann er farinn að nálgast toppbaráttuna í heimsmeistarakeppni ökumanna og nokkrir svona dagar í viðbót koma honum inn í miðja baráttu. Hver sagði hvað eftir keppnina?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×