Innlent

Ætla að fjölga leigubílaleyfum

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Leyfum til akstur leigubíla hefur nær ekkert fjölgað frá 2003.
Leyfum til akstur leigubíla hefur nær ekkert fjölgað frá 2003. Vísir/Vilhelm
SAMGÖNGUR Á döfinni er að fjölga atvinnuleyfum til leigubifreiðaaksturs um alls hundrað. Fjöldinn hefur nánast verið óbreyttur í sextán ár.

Drög að breytingum á reglugerð um leigubifreiðar eru nú í umsagnar­ferli hjá samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneytinu. Í tillögunum kemur fram að stefnt sé að því að fjölga leyfum á höfuðborgarsvæðinu um níutíu og yrðu þau 650 eftir breytinguna. Leyfum á Akureyri verður fjölgað um sjö, upp í 28, og í Árborg á að fjölga þeim upp í ellefu.

Ástæðurnar fyrir fjölguninni eru aukinn fjöldi ferðamanna og íbúafjölgun á umræddum svæðum. Hægt er að senda umsagnir til ráðuneytisins til 3. ágúst næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×