Glamour

Annálaðar fataáhugakonur selja úr fataskápnum

Ritstjórn skrifar
Hafrún Alda Karls, Saga Sig og Kristín Dahl
Hafrún Alda Karls, Saga Sig og Kristín Dahl
Það er heldur betur ástæða til að kíkja í miðbæ Reykjavíkur í dag, því BAST Magazine heldur fatamarkað á LOFT Hostel. Þær Anna Sóley, Eva Dögg, Hafrún Karls, Helga Lilja, Hulda Halldóra, Hulda Katarína, Júlía Tómas, Katrín Alda, Kristín Dahl, Saga Sig og Ylfa Geirs hafa hreinsað úr fataskápnum og þar ættu að leynast margir skemmtilegir hlutir. Merkjavörur, vintage, fylgihlutir, skór, skart, notað og nýtt er það sem þær munu meðal annars bjóða upp á.

Þarna verður eflaust mikið stuð og Glamour mælir með að kíkja.

Hvar: LOFT Hostel

         Bankastræti 7

         101 Reykjavík

Hvenær: 15. júlí frá 13.00-17.00

Hér má sjá meira um viðburðinn.






×