Fótbolti

FH fer annaðhvort til Slóveníu eða Bosníu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Steven Lennon fékk að finna fyrir því í fyrri leiknum.
Steven Lennon fékk að finna fyrir því í fyrri leiknum. Vísir/Stefán
Í morgun varð ljóst hvaða lið bíður FH í næstu umferð takist þeim að slá Víkinga frá Götu úr annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar.

Dregið var í þriðju umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í höfuðstöðum UEFA.

FH mætir þar annaðhvort Zrinjski Mostar frá Bosníu eða Maribor frá Slóveníu. Það er líklegra að það verði Slóvenía því Maribor vann 2-1 útisigur í fyrri leik liðanna.

FH og Víkingur gerðu 1-1 jafntefli í vikunni eftir að FH komst í 1-0 á 49. mínútu og var yfir í 24 mínútur.

Færeyingar skoruðu mikilvæg útivallarmark 17 mínútum fyrir leikslok og því verður á brattan að sækja í seinni leiknum í Þórshöfn í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×