Fótbolti

Bonucci þakkar öllum nema Allegri

Elías Orri Njarðarson skrifar
Bonucci kveður að öllum líkindum Juventus
Bonucci kveður að öllum líkindum Juventus visir/getty
Leonardo Bonucci, sem hefur leikið með Juventus undanfarin ár, verður að öllum líkindum nýjasti leikmaður A.C Milan á Ítalíu á næstunni.

Bonucci hefur því sent frá sér þakkarorð til stuðningsmanna, leikmanna og annarra sem komu að liði Juventus á heilsíðu í ítalska blaðinu La Gazzetta dello Sport. Það kom hinsvegar mörgum á óvart að Bonucci minnist aldrei á nafn Massimo Allegri, þjálfara Juventus.

Bonucci, sem er 30 ára gamall, hefur leikið með Juventus í sjö ár og hefur unnið ítölsku deildina sex sinnum, lenti upp á kant við Allegri fyrir þó nokkru síðan og hefur sambandið á milli þeirra síðan þá verið mjög stirt.

Búist er við að Bonucci klári læknisskoðun hjá Milan á morgun og muni vera kynntur sem nýjasta viðbót í leikmanna hóp þeirra von bráðar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×