Fótbolti

Shinji Kagawa framlengir við Dortmund til ársins 2020

Elías Orri Njarðarson skrifar
Kagawa verður allavega í þrjú ár í viðbót
Kagawa verður allavega í þrjú ár í viðbót visir/getty
Japanski miðjumaðurinn, Shinji Kagawa, hefur framlengt samning sinn við Bourssia Dortmund sem leikur í þýsku Bundesligunni.

Kagawa sem kom til Dortmund í annað skiptið á ferlinum frá Manchester United árið 2014, framlengdi samning sinn til ársins 2020.

Kagawa hóf feril sinn í heimalandinu hjá Cerezo Osaka en gekk til liðs við Dortmund í fyrra skiptið árið 2010 og sló þar í gegn. Kagawa var síðan keyptur til Manchester United árið 2012 og lék þar til ársins 2014 en þá gekk hann aftur til liðs við þýska stórliðið.

Kagawa hefur leikið rúmlega 120 leiki fyrir Dortmund og skorað 36 mörk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×