Fótbolti

Kristinn Freyr spilaði allan leikinn í sigri Sundsvall

Elías Orri Njarðarson skrifar
Kristinn var að vana í byrjunarliði Sundsvall í dag
Kristinn var að vana í byrjunarliði Sundsvall í dag visir/getty
Sundsvall vann Halmstad 1-0 í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Staðan var markalaus þegar að fyrri hálfleik lauk en eftir rúmlega fimm mínútna leik í síðari hálfleiknum kom Eric Larsson Sundsvall yfir í leiknum, 1-0. Hvorug liðin bættu við fleiri mörkum í leiknum og endaði því leikurinn með 1-0 sigri Sundsvall.

Kristinn Freyr Sigurðsson spilaði allan leikinn hjá Sundsvall en Kristinn Steindórsson var ekki í leikmannahópi liðsins í dag en hann hefur verið að glíma við erfið meiðsli.

Með sigrinum í dag juku leikmenn Sundsvall forskotið enn meira á Halmstad sem situr fyrir neðan þá í deildinni. Fyrir leik sat Sundsvall í 13. sæti með 11 stig en Halmstad í sætinu fyrir neðan með 8 stig en eftir leikinn í dag eru Sundsvall með 14 stig en sitja engu að síður í sama sæti í deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×