Fótbolti

Federico Fazio til Roma

Elías Orri Njarðarson skrifar
Fazio er búinn að skrifa undir hjá Roma
Fazio er búinn að skrifa undir hjá Roma visir/getty
Argentínski varnarmaðurinn Federico Fazio er genginn til liðs við Roma frá Tottenham Hotspur.

Fazio, sem er 30 ára gamall, hafði ekki fundið sig á Englandi og var á láni hjá Roma á síðasta tímabili.

Tottenham keypti varnarmanninn öfluga frá Sevilla árið 2014 en Fazio fann sig engan veginn hjá Tottenham og spilaði einungis 32 leiki fyrir enska liðið.

Fazio var lánaður aftur til Sevilla í lok tímabilsins árið 2015/2016 og var svo til Roma í byrjun síðasta tímabils þar sem að hann lék 37 leiki og skoraði 2 mörk.

Argentíski varnarmaðurinn hefur hrifið forráðamenn ítalska liðsins og hefur hann því verið keyptur yfir en talið er að kaupverðið sé 3.2 milljónir evra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×