Innlent

Eldur í einbýlishúsi á Stokkseyri

Við aðkomu á vettvang var mikill eldur í húsinu.
Við aðkomu á vettvang var mikill eldur í húsinu. Brunavarnir Árnessýslu
Brunavarnir Árnessýslu fengu boð um eld í einbýlishúsi á Stokkseyri á sjötta tímanum í morgun. Íbúi hússins komst út af sjálfsdáðum og var fluttur með sjúkrabifreið til aðhlynningar á Landsspítalann í Fossvogi.

Mikill eldur var í húsinu en slökkviliðsmenn frá Selfossi og Hveragerði fóru á staðinn með dælubíla, tankbíla og körfubíla. Auk þess var óskað eftir aðstoð frá slökkviliðsmönnum Brunavarna Árnessýslu frá Laugarvatni þegar leið á morguninn.



Slökkviliðsmenn frá Selfossi og Hveragerði fóru á staðinn með dælubíla, tankbíla og körfubíla.Brunavarnir Árnessýslu
Búið er að slökkva eldinn en þar sem húsið er gamalt og einangrað með heyi að hluta til geta leynst glæður inn í veggjum og þaki. Vinnan heldur því áfram fram eftir degi.

Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn á eldsupptökum.

Eldsupptök eru ekki ljós að svo stöddu.Brunarvarnir Árnessýslu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×