Innlent

Taka sundkúta úr notkun: „Skyndilega sekkur hann öðru megin niður“

Samúel Karl Ólason skrifar
Kútarnir verða ekki settir aftur í umferð og verður framleiðsluferli þeirra skoðað.
Kútarnir verða ekki settir aftur í umferð og verður framleiðsluferli þeirra skoðað. Vísir/Stefán
Forsvarsmenn Orku náttúrunnar hafa ákveðið að taka alla sundkúta sem fyrirtækið gaf sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum úr notkun. Það var gert eftir að kútur slitnaði af tæplega þriggja ára barni. Neytendastofu hafði þá borist ábendingar um rifna kúta um tveimur vikum áður.

Ábendingin sem um ræðir kom frá Óla Vali Þrastarsyni. Hann sagði frá atviki á Facebook þar sem kútur sem tæplega þriggja ára sonur hans var að nota rifnaði.

Leit út eins og nýr

Hann segir kútin hafa litið út fyrir að vera nýjan og að hann hafi farið sérstaklega yfir þá, áður en hann setti þá á son sinn. Þá segist hann hafa séð marga kúta rifna viða áður. Því hafi hann kannað þennan sérstaklega.

„Hann er búinn að synda svona tvo metra út í laugina og þá skyndilega sekkur hann öðru megin niður,“ sagði Óli á Bylgjunni í morgun. Hann var þó skammt frá og tók son sinn strax upp.

Óli og Áslaug Thelma Einarsdóttir, forstöðumaður einstaklingsmarkaðar OR, ræddu málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hægt er að hlusta á það hér að neðan.

Hratt brugðist við

Áslaug Thelma, sagði í morgun að hún hefði séð færslu Óla um klukkan tvö í gær og henni hafi brugðið.

„Við brugðumst mjög hratt við og á nokkrum klukkutímum voru kútarnir farnir úr flestum sundlaugum og í kjölfarið munum við skoða málið,“ sagði Áslaug.

Í tilkynningu frá ON segir að fyrirtækið hafi þegar hafið könnun á öryggi kútanna í kjölfar „fyrirspurnar Neytendastofu fyrir um hálfum mánuði síðan, en borist höfðu ábendingar um rifna kúta á sundstöðum.“

Notað fyrir höfuðpúða

Rætt var við starfsmenn sundlauga og leiddi sú könnun í ljós að almenn ánægja ríkti með kútana og að skemmdir á þeim væri hægt að rekja til slæmrar meðferðar á þeim. Sem dæmi hefði borið á því að sundlaugargestir hefðu rifið kútana í sundur til þess að nota sem púða undir höfuð sín.

Í tilkynningunni segir að fyrirtækið hafi þegar í stað látið útbúa sérstakar höfuðhvílur og notkunarleiðbeiningar með kútunum.

„Þegar ábending barst snemma á sunnudag (16. júlí) um að kútur hefði rifnað í notkun var hins vegar tekin ákvörðun um að taka kútana þegar í stað úr umferð og strax haft samband við alla sundstaði sem fengið höfðu kúta.“

Kútarnir verða ekki settir aftur í umferð og verður framleiðsluferli þeirra skoðað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×