Fótbolti

Ingibjörg: Partíið er ekki í herberginu hjá okkur Öglu Maríu

Tómas Þór Þórðarson í Ermelo skrifar
Nýliðarnir tveir; Agla María Albertsdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir.
Nýliðarnir tveir; Agla María Albertsdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir. vísir/tom
Ingibjörg Sigurðardóttir, miðvörður Breiðabliks, er einn af EM-nýliðunum í íslenska hópnum í Hollandi en hún tryggði sér farseðilinn á Evrópumótið með frábærri frammistöðu í síðustu tveimur vináttuleikjum Íslands fyrir mótið sem voru gegn Írlandi og Brasilíu.

Ingibjörg fékk mikið lof fyrir frammistöðuna á móti Brasilíu, síðast á blaðamannafundi íslenska liðsins í gær þar sem samherji hennar í Blikaliðinu, Fanndís Friðriksdóttir, hrósaði henni í hástert.

Ingibjörg, sem er fædd árið 1997, er svona enn að ná áttum eftir að vera komin á stórmót í fyrsta sinn en spili hún á móti Frakklandi á morgun verður það aðeins hennar þriðji landsleikur.

„Það er rosalega gaman að vera komin hingað og mjög spennandi,“ segir Ingibjörg við Vísi á hóteli stelpnanna í gær þangað sem íslensku fjölmiðlarnir fengu að kíkja í heimsókn.

Ingibjörg Sigurðardóttir átti stórleik á móti Brasilíu og fékk farseðilinn á EM.vísir/anton

Kennir manni svo margt

Fleiri nýliðar eru í hópnum eins og Agla María Albertsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir. Reynsluboltarnir fara vel með þessar nýju.

„Það er farið mjög vel með okkur. Stelpurnar eru allar mjög almennilegar og taka vel á móti okkur. Það er ekkert vesen með það,“ segir Ingibjörg. „Þetta dæmi er allt annað en ég bjóst við. Hér eru bara atvinnumenn í kringum mann. Maður lærir svo margt nýtt, alltaf eitthvað á hverjum degi.“

Ingibjörg segist njóta þess að æfa með atvinnumönnum eins og Söru Björk, Dagnýju og Guðbjörgu Gunnarsdóttur sem veita henni mikinn innblástur.

„Þetta kennir manni svo ótrúlega margt. Maður sér strax hvað maður getur bætt í sínum leik og hvernig maður æfir með því að horfa á þessa atvinnumenn æfa. Maður vissi ekkert hvernig þær hafa verið að gera þetta því ég er bara heima á Íslandi í mínum þægindaramma. Það er bara geggjað að sjá þetta og upplifa,“ segir hún en hvetur þetta miðvörðinn til frekari dáða?

„Alveg klárlega. Um leið og maður mætti fyrst í hópinn fór maður strax að hugsa um hvað maður þarf að gera betur. Ég verð að gera allar æfingar á fullu og svo tek ég þetta með mér heim á æfingar með Breiðabliki og er ákveðnari þar á æfingum.“

Ingibjörg á landsliðsæfingu um helgina með samherja sínum í Breiðabliki, Fanndísi Friðriksdóttur.vísir/tom

Nýliðarnir saman í herbergi

Ingibjörg byrjaði síðustu tvo leiki íslenska liðsins í fjarveru Önnu Bjarkar Kristjánsdóttur en hún er nú komin aftur. Vonast Ingibjörg eftir byrjunarliðssæti á móti Frakklandi?

„Maður vill alltaf spila en Anna Björk er frábær leikmaður. Það er mikil samkeppni um þessar stöður því Arna Sif er þarna líka og hún hefur verið að koma mjög sterk inn. Ég legg mig alla fram á æfingum en síðan verð ég bara að vona það besta og vonast eftir fleiri mínútum og einhverjum tækifærum,“ segir hún.

Ingibjörg var sett í herbergi með öðrum nýliða, Öglu Maríu Albertsdóttur, en þær þekkjast frá því á árum áður. Þær ólust báðar upp í Breiðabliki áður en Agla María fór í Val og svo Stjörnuna en hjá Blikum urðu þær saman Íslandsmeistarar í 2. flokki.

„Hún er Bliki, það má ekki gleymast. Við Agla María náum vel saman og það er fínt að hafa hana sem herbergisfélaga. Það er langt síðan við vorum samherjar síðast þannig það er gaman að vera með henni núna,“ segir Ingibjörg og viðurkennir að lætin séu ekki mikil úr þeirra herbergi.

Ekki missa af neinu tengdu stelpunum okkar á EM 2017 í Hollandi. Íþróttadeild 365 er með öflugt teymi fréttamanna á mótinu og færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af íslenska liðinu. Fylgdu okkur á FacebookTwitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Næturfrí á EM til að gefa brjóst

Jóhannes Karl Sigursteinsson, hinn sex ára Steinar Karl og hinn sjö mánaða gamli Ýmir voru glaðir í bragði þegar Harpa Þorsteinsdóttir kom í hollenska kotið þeirra í gærkvöldi eftir langan dag með landsliðinu.

Lagði mikið á sig til að ná EM

Sandra María Jessen sleit aftara krossband í mars en lagði ótrúlega mikið á sig til að komast í stand fyrir Evrópumótið og það tókst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×