Fótbolti

Foreldrar Önnu Bjarkar búnir að kaupa miða á úrslitaleikinn

Kolbeinn Tumi Daðason í Ermelo skrifar
Hjónin Margrét og Haukur ásamt börnum sínum Kristófer Geir, Helgu Margréti og Braga Páli. Kristófer Geir er klæddur í treyju Önnu Bjarkar frá leiknum gegn Þjóðverjum á EM fyrir fjórum árum.
Hjónin Margrét og Haukur ásamt börnum sínum Kristófer Geir, Helgu Margréti og Braga Páli. Kristófer Geir er klæddur í treyju Önnu Bjarkar frá leiknum gegn Þjóðverjum á EM fyrir fjórum árum. Vísir/Vilhelm
Hjónin Margrét Geirsdóttir og Haukur Bragason eru svo sannarlega klár í slaginn fyrir EM 2017 og börn þeirra þrjú sömuleiðis. Fimm manna fjölskyldan var öll komin í íslensku landsliðstreyjurnar þegar hún flaug utan til Amsterdam í morgun en þau eiga sinn uppáhaldsleikmann í liðinu.

„Við erum Team Kristjánsdóttir,“ segir Margrét, föðursystir Önnu Bjarkar, í samtali við Vísi. Sjúkraþjálfarinn og miðvörðurinn Anna Björk er þeirra kona. Margrét segir stuðningssveit Önnu Bjarkar telja 15-20 manns. Mörg, þar á meðal foreldrarnir komu til Hollands í gær, og svo voru þau fimm komin í dag.

„Á meðan riðlakeppnin er í gangi verðum við í nokkrum sumarhúsum við Aalst, um klukkutíma suður af Amsterdam,“ segir Margrét. En hvað með framhaldið? „Ég verð áfram. Við gerum ráð fyrir að þær komist áfram.“

Foreldrar Önnu Bjarkar eru enn bjartsýnni.

„Þau eru búin að kaupa sér miða á úrslitaleikinn,“ segir Margrét en stuðningurinn er öllu meiri en þegar Anna Björk var í hópnum á EM í Svíþjóð fyrir fjórum árum. Þá hafi ekki margir komist út til að fylgja henni en nú sé tíðin önnur.

Að neðan má sjá þegar íþróttadeild fékk að skyggnast á bak við tjöldin hjá stelpunum okkar með Dagnýju Brynjarsdóttur.


Veðrið á Íslandi í sumar hefur ekki verið neitt til að hrópa húrra yfir. Margrét fann strax ylinn á flugvellinum í dag þar sem hún beið eftir töskunum. Veðrið er öllu betra hér í Hollandi en á klakanum.

„Maður finnur strax hitann og það léttist á manni brúnin.“

Margrét segir fjölskylduna aldrei hafa verið í vafa um að fara út þegar liðið tryggði sér sæti á EM. Búið sé að fjárfesta í búningum fyrir alla og svo skiptast systkinin á að klæðast búningi Önnu Bjarkar frá EM 2013.

„Við verðum hérna úti í þrjár vikur en tökum svo úrslitaleikinn heima.

Ekki missa af neinu tengdu stelpunum okkar á EM 2017 í Hollandi. Íþróttadeild 365 er með öflugt teymi fréttamanna á mótinu og færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af íslenska liðinu. Fylgdu okkur á FacebookTwitter og Snapchat (sport365).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×