Viðskipti innlent

Samkeppniseftirlitið hafnar samruna Haga og Lyfju

Sæunn Gísladóttir skrifar
Finnur Árnason, forstjóri Haga
Finnur Árnason, forstjóri Haga
Samkeppniseftirlitið hefur í dag hafnað samruna Haga hf. og Lyfju hf. en þann 17. nóvember 2016 tilkynntu Hagar um kaup á öllu hlutafé í Lyfju.

Fram kemur í tilkynningu að kaupsamningurinn var undirritaður með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Fyrirvörum vegna niðurstöðu áreiðanleikakönnunar var aflétt í apríl síðastliðnum, en Samkeppniseftirlitið hefur nú með úrskurði hafnað samrunanum.

Fram kemur í tilkynningu frá Högum að niðurstaðan sé vonbrigði og muni félagið taka hana til sérstakrar skoðunar næstu daga. Þá ber að árétta að Hagar höfðu ekki tekið við rekstri Lyfju og mun ákvörðunin því ekki hafa áhrif á áður birt reikningsskil félagsins.








Tengdar fréttir

Hagar bjóða í Lyfju

Verslunarfyrirtækið Hagar hafa boðið í Lyfju sem er í sölumeðferði Lindarhvols. Lindarhvoll hefur umsýslu og sölu eigna ríkissjóðs.

Hagar kaupa Lyfju

Gangi fyrirvarar eftir má gera ráð fyrir að gengið verði frá viðskiptunum fyrir 1. júlí 2017.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×