Innlent

Segir æru ráðuneytisins vera í húfi vegna máls Roberts Downey

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Benedikt Erlingsson krefst svara.
Benedikt Erlingsson krefst svara. Fréttablaðið/Heiða Helgadóttir
Benedikt Erlingsson, leikari og leikstjóri segir æru ráðuneytisins og stjórnsýslunnar allrar vera í húfi. Ráðuneytið þurfi að svara fyrir þá ákvörðun að veita Robert Downey uppreist æru. Þetta segir hann í stöðuuppfærslu á Facebook. DV greindi fyrst frá.

Benedikt er ósáttur við þá ákvörðun Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra, að greina ekki frá nöfnum þeirra einstaklinga sem vottuðu um góða hegðun Roberts Downey.

Sjá einnig: Mun ekki birta nöfn þeirra sem vottuðu um góða hegðun Roberts Downey

Robert Downey, sem áður hét Róbert Árni Hreiðarsson, hlaut lögmannsréttindi á ný þann 15. júní síðastliðinn. Robert hafði áður verið dæmdur í Hæstarétti í þriggja ára fangelsi árið 2008 fyrir kynferðisbrot gegn fjórum unglingsstúlkum og hafði héraðsdómur áður einnig fallist á beiðni hans um að hann fengi lögmannsréttindin aftur.

Meðal skilyrða þess að fá uppreist æru er að tveir einstaklingar sendi inn umsögn um góða hegðun viðkomandi. Í tilkynningu ráðuneytisins er vísað í að viðkvæmar persónuupplýsingar séu allar undanþegnar aðgangi almennings samkvæmt lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. „Af þeim sökum afhendir ráðuneytið ekki gögn er varða einstaka umsóknir um uppreist æru.“

Benedikt segir í stöðuuppfærslu sinni að með því að neita almenningi um þessar upplýsingar sé mannorð og æra fjölda heiðarlegs fólks sem starfi í ráðuneytinu í húfi.

Hann bætir auk þess við: „Þvi ef þessu verður ekki svarað og hinir „valinkunnu menn“ verða áfram „huldumenn“ ef gögn finnast ekki og yfirhylming og undanbrögðum verður áfram beitt fer sá grunur að skjóta rótum að hér geti verið um að ræða NET BARNANÍÐINGA sem teygir sig gegnum stjórnsýsluna og upp í gegnum Innanríkisráðuneytið.“

Stöðuuppfærslan í heild sinni:


Tengdar fréttir

Í hvers konar samfélagi viljum við búa?

Þannig er nefnilega mál með vexti að báðir eigum við tvær dætur sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. Samtals fjórar stúlkur. Á ýmsan hátt hefur þeim verið nauðgað, þær beittar ofbeldi og misnotaðar kynferðislega. Þeirri fimmtu var byrluð ólyfjan en henni komið undir læknishendur áður en frekari glæpir áttu sér stað.

Viðbrögðin hafa rétt við bakið á þolendum Róberts Downey

Vinna er hafin við frumvarp sem dómsmálaráðherra ætlar að leggja fram í haust, um breytingar á uppreist æru. Faðir stelpu sem hefur orðið fyrir ofbeldi fagnar frumvarpinu og vill halda áfram að ræða þessi mál. Enn fást engin svör frá

Býður fram aðstoð fyrir fórnarlömb Roberts Downey

Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri og faðir stúlku sem Robert Downey, áður Róbert Árni Hreiðarsson, braut á segir að séu fleiri fórnalömb hans þarna úti vilji hann heyra í þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×