Fótbolti

Theodór Elmar búinn að semja við Elzagispor

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Theodór Elmar í landsleik gegn Tyrklandi.
Theodór Elmar í landsleik gegn Tyrklandi. vísir/ernir
Theodór Elmar Bjarnason er genginn í raðir tyrkneska félagsins Elzagispor.

Elmar birti mynd af sér í búningi Elzagispor á Twitter í morgun.

„Ánægður með að hafa samið við Elzagispor. Hlakka til að hjálpa liðinu á næsta tímabili,“ skrifaði Elmar við myndina á Twitter.

Elzagispor leikur í næst efstu deild í Tyrklandi. Liðið endaði í 10. sæti hennar á síðasta tímabili.

Elmar lék síðast með AGF í Danmörku. Hann hefur einnig leikið með KR, Celtic, Lyn, IFK Göteborg og Randers.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×