Lífið

Internetið er að missa sig yfir þessum krúttlegu tvíburum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sjá þessi krútt!
Sjá þessi krútt!
Myndband sem Kelly Thomas, móðir nýsjálensku tvíburanna Noah og Micah tók á dögunum af sonum sínum, hefur heldur betur slegið í gegn.

Á myndbandinu má sjá þá Noah og Micah í hláturskasti á líkamsræktartæki móður sinnar sem hristist svona líka skemmtilega og gleður litlu drengina tvo.

Móðursystir þeirra, Lauren Thomas, sendi myndbandið á lífsstílsbloggarann Ellie sem birti það svo á Facebook-síðu sinni.

Þar hefur verið horft á það 85 milljón sinnum auk þess sem því hefur verið deilt í 1,5 milljón skipti og eru flestir á því að þetta sé með því krúttlegasta sem internetið hefur upp á að bjóða í dag.

Að minnsta kosti er þetta ágætis gleðigjafi í haustrigningunni hér á Fróni svona um mitt sumar.

Myndbandið má sjá hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×