Lífið

Hljóðblandaði hrotur eiginmannsins í takt við Despacito

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Vægast sagt stórskemmtileg hugmynd hjá þessari kátu konu.
Vægast sagt stórskemmtileg hugmynd hjá þessari kátu konu. Mynd/Skjáskot
Stórskemmtilegt myndband úr smiðju pirraðrar eiginkonu hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Í myndbandinu má sjá mann konunnar hrjóta í takt við hinn ægivinsæla sumarsmell, Despacito, sem upphaflega glumdi í útvarpstækjum almennings í flutningi tónlistarmannanna Daddy Yankee og Luis Fonsi.

„Ég hef tekið upp hrotur eiginmanns míns síðustu fjögur ár. Þetta varð útkoman eftir að ég hljóðblandaði hroturnar með hjálp frænda míns, njótið!“ segir konan í byrjun myndbandsins.

Gamanið hefst svo á mínútu 0:16 þegar „Ronquidito ásamt Raúl Amador Márquez“ hefst.

Og hér má heyra lagið í flutningi Luis Fonsi og Daddy Yankee en undanfarin misseri hefur myndbandið verið á hraðleið með að verða það mest spilaða á Youtube.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×