Lífið

Jessica Alba og Cash Warren eiga von á barni

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Það fjölgar í hópnum hjá stjörnuparinu.
Það fjölgar í hópnum hjá stjörnuparinu. Vísir/Getty
Leikkonan og viðskiptamógúllinn Jessica Alba og eiginmaður hennar Cash Warren, eiga nú von á sínu þriðja barni. Fyrir eiga þau dæturnar Honor Marie og Haven Garner.

Leikkonan fór óvenjulega leið að því að greina frá þessum gleðilegu fréttum en hún tók upp afar krúttlegt myndband af sér og dætrum sínum tveimur þar sem þær halda á svörtum uppblásnum stafablöðrum með tölunum einum, tveimur og þremur. Þá sést Alba auk þess halda um kviðinn, skælbrosandi.

Hér að neðan má sjá myndbandið.

A post shared by Jessica Alba (@jessicaalba) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×