Fótbolti

Vilhjálmur dæmir hjá Hallgrími og félögum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vilhjálmur Alvar dæmir í Danmörku annað kvöld.
Vilhjálmur Alvar dæmir í Danmörku annað kvöld. vísir/anton
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir fyrri leik Lyngby frá Danmörku og slóvakíska liðsins Slovan Bratislava í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar annað kvöld.

Með Lyngby leikur Hallgrímur Jónasson. Lyngby er á sínu fyrsta tímabili í Evrópukeppni í sögu félagsins. Í 1. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar vann danska liðið Bangor City frá Wales.

Vilhjálmi til aðstoðar í leiknum á morgun verða þeir Gylfi Már Sigurðsson, Bryngeir Valdimarsson og Þóroddur Hjaltalín.

Þá dæmir Gunnar Jarl Jónsson leik HJK Helsinki og Shkëndija frá Makedóníu í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar á morgun. Þetta er fyrri leikur liðanna og fer hann fram í Helsinki.

Gunnari til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson, Bryngeir Valdimarsson og Þóroddur Hjaltalín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×